Nýtt varphænuhús að Hranastöðum tekur á sig mynd
- Kristján Heiðar
- Aug 13
- 2 min read

Reising stálgrindar nýs varphænuhúss að Hranastöðum í Eyjafirði er nú komin vel af stað. Verkefnið er mikilvægur áfangi í uppbyggingu Eggjabúsins að Hranastöðum og mun húsið, þegar það verður fullbúið, bjóða upp á nútímalega og öfluga aðstöðu fyrir starfsemina.
Byggingin er um 3.410 m² að stærð, 84 metrar að lengd og rúmir 40 metrar að breidd. Um er að ræða umfangsmikið stálgrindarhús þar sem lögð hefur verið áhersla á endingargóðar lausnir og efnisval sem hentar vel íslenskum aðstæðum.
Súlur Stálgrindarhús annast burðarþolshönnun stálvirkis og klæðninga ásamt afhendingu og uppsetningu stálgrindar, samlokueininga og hurða. Stálvirkið er heitgalvanhúðað og húsið verður klætt einangruðum samlokueiningum. Samlokueiningar verða jafnframt notaðar í milliveggi hússins.

Undirbúningur og hönnun verkefnisins hefur staðið yfir um nokkurt skeið og nú er sá áfangi hafinn þar sem byggingin sjálf tekur hratt á sig mynd. Reising burðarvirkisins er komin vel af stað og stór hluti stálgrindarinnar í fyrsta hluta hússins þegar risinn.
Eins og sjá má á myndum frá framkvæmdasvæðinu er umfang mannvirkisins orðið vel sýnilegt. Unnið er markvisst áfram eftir húsinu við reisingu súlna, bita og annarra hluta burðarvirkisins. Á næstu vikum heldur reising stálgrindarinnar áfram og í kjölfarið tekur við uppsetning klæðninga og annar frágangur á húsinu.
„Við lögðum mikla áherslu á að velja samstarfsaðila sem við treystum til að skila vönduðu mannvirki á réttum tíma. Frá fyrstu samskiptum hefur samstarfið við Súlur Stálgrindarhús verið faglegt og lausnamiðað og það er ánægjulegt að sjá bygginguna nú rísa. Við hlökkum til að fylgjast með verkefninu taka á sig mynd á næstu vikum.“– Arnar Árnason og Ásta A. Pétursdóttir, Eggjabúinu Hranastöðum

„Það er alltaf sérstakur áfangi þegar fyrsta súlan fer upp. Þá sér maður margra mánaða hönnunar- og undirbúningsvinnu verða að veruleika. Verkefnið að Hranastöðum er bæði stórt og spennandi og við erum ánægð með að fá að taka þátt í þessari uppbyggingu. Við þökkum Arnari, Ástu og Eggjabúinu Hranastöðum fyrir traustið og hlökkum til að fylgja verkefninu alla leið til verkloka,“ segir Kristján Heiðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Súlna Stálgrindarhúsa.
Framkvæmdir eru nú komnar á fullt skrið og á næstu vikum mun ásýnd framkvæmdasvæðisins breytast hratt eftir því sem meginburðarvirki hússins rís og klæðning hefst.
Við munum áfram fylgjast með framvindunni og deila fleiri myndum og fréttum af verkefninu eftir því sem framkvæmdum miðar áfram.


Comments